Tilnefning til Menningarverðlauna DV

Dansinn tilnefndur til Menningarverðlauna DV

föstudagur, 25. febrúar 2011

Í fyrsta sinn í 31. árs sögu Menningarverðlauna DV verða nú veitt verðlaun í flokknum danslist. Aðrir flokkar eru bókmenntir, byggingarlist, fræði, hönnun, kvikmyndir, leiklist, myndlist og tónlist. Tilnefndir í flokki danslistar eru: Keðja – Reykjavík, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Ólöf Ingólfsdóttir, Reykjavík Dance Festival og Sigríður Soffía Níelsdóttir.

Keðja Reykjavik – alþjóðlegur dansviðburður
– fyrir frábært framtak
Í október 2010 skapaðist ómetanlegt tækifæri fyrir íslenska danslistamenn þegar þeim gafst kostur að mæta, kynnast og tengjast 250 alþjóðlegum listamönnum og menningarstjórnendum frá 22 löndum. Í þeim hópi voru mikilvægir kaupendur sviðsverka. Hátíðin bauð upp á 16 listviðburði af öllum stærðum og gerðum, með megin áherslu á dans og samruna hans við aðrar listgreinar, fjölda fyrirlestra, málstofa og umræðna sem leiddar voru af alþjóðlegu listafólki og menningarstjórnendum auk þess sem boðið var upp á ógleymanlega óvissuferð í íslenska náttúru. Keðja Reykjavik var gríðarlega mikilvægt stefnumót íslenskra sviðslista við umheiminn og skapaði sambönd og tækifæri til samvinnu fyrir þáttakendur sem vonir eru bundnar við til framtíðar. Keðja var samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Reykjavik Dance Festival, Sjálfstæðu leikhúsanna, Listaháskóla Íslands og Borgarleikhússins.

Sigríður Soffía Níelsdóttir
– fyrir fjölbreyttan árangur á árinu 2010.
Árið 2010 var viðburðaríkt hjá þessum unga listamanni sem kom fram með hvelli á árinu. Með viljakraftinn að vopni, hugrekki og ástríðu hefur Sigríður stigið óhindrað yfir hverskyns mörk. Undir merkjum Bristol Ninja Cava Crew vann hún að dansinnsetningum/-gjörningum, hún frumsýndi stuttmyndina Children of Eve á stuttmyndahátíð í Bilbao og sýndi dansstuttmyndina Uniform Sierra á öðrum tug hátíða í Evrópu og Asíu. Sigríður samdi dans-sirkúsverkið Colorblind fyrir Silesian Dance Theatre í Póllandi, 900 02 ásamt Leifi Þorvaldssyni, og Þá skal ég muna þér kynnhestinn með Dansfélaginu Krumma fyrir Reykjavík Dance Festival 2010. Sigríður dansaði í uppsetningu Íslenska dansflokksins á Transaquania – into thin air og ferðaðist erlendis með verki Ernu Ómarsdóttur Teach us to outgrow our madness og eigin verki Fresh Meet.

Ólöf Ingólfsdóttir
– fyrir ómetanlegt starf í þágu íslensks samtímadans
Ólöf Ingólfsdóttir danshöfundur er brautryðjandi meðal sjálfstætt starfandi danslistamanna og hefur verið driffjöður í skapa betri skilyrði í þágu listgreinarinnar á Íslandi. Hún hefur átt frumkvæði að, leitt eða stutt helstu framfaraspor til handa sjálfstætt starfandi danslistamönnum á undanförnum árum. Ólöf er einn stofnanda Reykjavik Dance Festival og leiddi uppbyggingu hennar fyrstu árin auk þess sem hún tók virkan þátt í undirbúningi að stofnun dansdeildar Listaháskóla Íslands. Hún átti frumkvæði að umræðu um Danshús á Íslandi um síðust aldamótin sem á árinu 2010 leiddi til opnunnar Dansverkstæðisins í Reykjavík að Skúlagötu 28. Ólöf var einnig í forystuhóp þeim sem skrifaði á árinu fyrstu Dansstefnu Íslands 10/20, sem er alhliða stefnumótun og framtíðarsýn fyrir íslenskt danssamfélag til næst 10 ára.

Margrét Sara Guðjónsdóttir
– fyrir Soft Target
Dansverkið Soft Target var frumsýnt á Reykjavík Dance Festival haustið 2010 áður en það fór á sýningaferðalag um Evrópu. Verkið er það fjórða í röð verka danlistamannsins Margrétar Söru Guðjónsdóttur sem sýnd hafa verið frá árinu 2006 og framleid eru af Panic Production. Í anda ofur naumhyggju er fagurfræði verksins einstaklega skýr, í senn nákvæm í endurtekningum sínum og dáleiðandi. Verkið er án efa eitt áhrifamesta sólódansverk sem litið hefur dagsins ljós á Íslandi á síðastliðnum árum.

Reykjavík Dance Festival
– fyrir árangursríkt starf í þágu íslenskra áhorfenda
Danshátíðin, stofnuð árið 2002, hefur vaxið og dafnað með hverju árinu og er í dag mikilvægasti vettvangurinn fyrir nýsköpun í íslenskum samtímadansi. Með tilkomu hennar hefur fjöldi danssýninga á hverju ári aukist jafnt og þétt. Þannig hafa möguleikar almennings til að njóta listdans aukist til muna auk þess sem hátíðin hefur náð til nýrra áhorfendahópa og byggt upp tengslin við þá. Árið 2010 voru mörkuð tímamót þegar áhorfendamet var slegið langt umfram það sem áður hafði þekkst. Hátíðin hefur frá upphafi haft úr litlum fjármunum að spila og fengið lága styrki úr opinberum sjóðum. Er sá mikli árangur sem náðst hefur, fenginn fyrir óeigingjarnt sjálfboðastarf danslistamanna en samtakamáttur þeirra hefur vakið athygli, jafnt hér heims sem og á alþjóðlegum vettvangi.

 

sjá meira á http://www.dance.is

Advertisement

~ by siggasoffia on February 26, 2011.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

 
%d bloggers like this: