Red Waters reaching Rouen.

•October 16, 2011 • Leave a Comment

 

Just finished a working block with Damien Jalet in Desingel in Anvers. Working with three great dancers, Aya Steigman & Meytal Blanaru from Israel and Clara Furey from Montreal. Now heading for the final destination: Rouen. Red waters will premiere on the 4th of November in The Opera de Rouen Haute Normandie.

Uniform Sierra sýnd á RDF í Bíó Paradís og Corti&sigarettes, Róm

•September 8, 2011 • Leave a Comment

Endilega skellið ykkur í bíóparadís um helgina, 10 íslenskar dansmyndir verða sýndar í tilefni af Reykjavík dance festival. Uniform Sierra verður sýnd á laugardaginn 10.september.

Ef þið missið af þeirri sýningu er alltaf hægt að skreppa til ítalíu og ná henni þar.  Uniform Sierra verður sýnd á stuttmyndahátíðinni Corti & Sigarettes í Róm þann 21.september.

Sjáið meira um RDF stuttmyndaprógramið á : http://bioparadis.is/2011/09/01/dansmyndahati%C3%B0-5-10-september/

Red Waters

•September 8, 2011 • Leave a Comment

Fyrstu æfingar á Óperunni “Red Waters” nýju verki Keren Ann og Barða Jóhannsonar (LAdy and Bird) hófust í París í vikunni. Óperunni er leikstýrt af Arthur Nauzyciel, hljómsveitarstjóri er Paul-Emmanuel Thomas & danshöfundur er Damien Jalet.  “Red Waters ” verður frumsýnt þann  4 nóvember í Óperunni í Rouen. Búningar eru í höndum Gaspard Yurkievich en leikmyndahönnuður er Ricardo Hernandez.

Meiri upplýsingar um RW má finna á http://www.cdn-orleans.com/2009-2010/index.php/fr/saison-2011-2012/red-waters

Currently in Paris starting the creation of a new opera “Red Waters” by Keren Ann and Bardi Johannsson (lady and bird).  Directed by Arthur Nauzyciel musical direcor Paul-Emmanuel Thomas, Choreograpy by Damien Jalet.  “Red Waters “will premiere the 4th of november at Rouen’s opera. Costumes are designed by Gaspard Yurkievich and the set design by Ricardo Hernandez.

more information on the opera at: http://www.cdn-orleans.com/2009-2010/index.php/fr/saison-2011-2012/red-waters

Fyrsti trailer frá nýrri þáttaröð – Tónspor –

•August 26, 2011 • Leave a Comment

Tónspor er heitið á nýrri þáttaröð í umsjón Jónasar Sen. Þættirnir eru sex og hver þáttur er helgaður einu tónskáldi og einum danshöfundi. Síðasta vetur voru þau beðin um að semja dans- og tónverk, og er í þáttunum fylgst með því hvernig það varð til, frá fyrstu hugmynd til frumsýningar. Auk þess að fjalla um höfundana fléttast inn í þættina stutt mynd- og viðtalsbrot þar sem varpað er ljósi á dans og dansmenningu í öllum sínum fjölbreytileika. Meginumfjöllun hvers þáttar er þannig sett í víðara samhengi við sögu og menningu. Þetta eru því jafnframt fræðsluþættir um fyrirbærið dans, sem hefur fylgt manninum frá örófi alda.
Danshöfundarnir eru Erna Ómarsdóttir, Steinunn Ketilsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir, Margrét Bjarnadóttir og Helena Jónsdóttir.
Tónskáldin eru Ólöf Arnalds, Áskell Másson, Hilmar Örn Hilmarsson, Daníel Bjarnason, Hildigunnur Rúnarsdóttir og Þórarinn Guðnason.
Um dagskrárgerð sér Jón Egill Bergþórsson.
Þættirnir eru samstarfsverkefni RÚV og Listahátíðar í Reykjavík.

Umfjöllun um Ernu og Teach us to outgrow our madess í Spænska sjónvarpinu.

•August 25, 2011 • Leave a Comment

Check out B-sides at www.snoop-around.com

•July 28, 2011 • Leave a Comment

 

Amazing pictures by Nanna Dís and Guðni Rúnar for http://www.snoop-around.com, check out their site !

New trailer from We Saw Monsters

•July 7, 2011 • Leave a Comment

 

From the piece “We saw monsters” by Erna Ómarsdóttir. Premiered at Reykjavík Arts festival the 20th of May 2011.

We saw monsters is a poetical piece where dance, singing, music and visual art is used to inspect the difference of horror in religion, myths, movies and real life.

Created and performed by Erna Ómarsdóttir, Valdimar Jóhannsson, Sigtryggur Berg Sigmarsson, Ásgeir Helgi Magnússon, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir and Sigríður Soffía Níelsdóttir.

Dance: Ásgeir Helgi Magnússon, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir og Erna Ómarsdóttir.

Music: Valdimar Jóhannsson and Sigtryggur Berg Sigmarsson.
Advisor: Gabríela Friðriksdóttir
Dramaturgy: Karen María Jónsdóttir

Photo: Bjarni Grímsson
Produced by Shalala  in cooperation with the Reykjavík Arts Festival and the National Theatre with a grant from the Ministry of Culture and Education.Sponsors:  Kópavogur Municipality and le CNDC Centre national de danse contemporaine Angers, WP zimmer in Antwerpen.

Teach us to Outgrow our madness- next weekend in Amsterdam!

•June 28, 2011 • Leave a Comment

 

On saturday (2 july )and sunday (the 3july) 2011 the danceperformance Teach Us to Outgrow Our Madness by  Erna Omarsdottir will be presented in Theater Bellevue in Amsterdam.

Be it sisters, nuns, witches, best friends, members of a sect, or polygamist wives. The rivalry, the secrecy, the gossip, the cruelty but also the kindness, the bonds, and the unconditional love.
This piece combines dance, live music and storytelling into a horrifying
yet liberating experience.

Can theater teach us to survive daily live? Can singing and dancing heal
a troubled mind?

We like to sing and dance
Go into a trance
We like gore
We always want more

CREATED AND PERFORMED BY :
Choreography, texts and costumes Sissel Merete Bjorkli, Riina Huhtanen, Sigridur Soffia Nielsdottir, Erna Omarsdottir and Valgerdur Rúnarsdóttir
also created by Margret Sara Gudjonsdottir
Music and texts Lieven Dousselaere and Valdimar Johannsson

Dramaturgy assistant Karen María Jónsdóttir
Lights Sylvain Rausa
Stage manager Eric Civel

Production/distribution Esther Welger-Barboza


New pictures from Teach us To outgrow our Madness

•June 23, 2011 • Leave a Comment

New pictures of the performance Teach us to outgrow our madness by Erna Ómarsdóttir. The piece is currently touring around Europe next performances in Amsterdam on the 2 and 3d of July.

http://dance-photos-gallery.photoshelter.com/gallery/OMARSDOTTIR-Erna-Teach-us/G0000_DVmi96o0Bc/0/1

link: _DSC8539.jpg | Laurent Paillier – Dance photos.

White for decay fær tilnefningu til Grímuverðlaunanna 2011

•June 10, 2011 • Leave a Comment

Tekið af griman.is:

TILNEFNINGAR til Grímuverðlauna 2011 í alls 16 flokkum sviðslista voru kunngjörðar í Borgarleikhúsinu mánudaginn 6. júní að viðstöddum fjölda sviðslistafólks. Alls komu 80 leiklistarverkefni til álita til Grímunnar í ár sem voru skoðuð af fagnefndum Grímunnar með verðlaunin eftirsóttu í huga. Þar af voru 20 danssýningar, 11 barnasýningar og 7 útvarpsverk. Við verkin störfuðu yfir eitt þúsund listamenn, tæknifólk og starfsfólk leikhúsanna.

DANSHÖFUNDUR ÁRSINS


Damien Jalet, Erna Ómarsdóttir og Gabríela Friðriksdóttir
fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Transaquania – Into Thin Air í sviðssetningu Íslenska dansflokksins

Erna Ómarsdóttir
fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Við sáum skrímsli í sviðssetningu Shalala í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið

Lára Stefánsdóttir í samstarfi við hópinn
fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Bræðrum í sviðssetningu Pars Pro Toto í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið

Margrét Bjarnadóttir, Saga Sigurðardóttir og hópurinn
fyrir kóreógrafíu í leiksýningunni Verði þér að góðu í sviðssetningu leikhópsins Ég og vinir mínir í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Sigríður Soffía Níelsdóttir
fyrir kóreógrafíu í danssýningunni White for Decay í sviðssetningu Sigríðar Soffíu Níelsdóttur og Íslenska dansflokksins

Valgerður Rúnarsdóttir og hópurinn
fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Eyjaskeggi í sviðssetningu Reykjavík Dance Festival.

Ása Richardsdóttir, forseti Leiklistarsambands Íslands og annar kynnir Grímuhátíðarinnar í ár, leikkonan góðhjartaða Katla Margrét Þorgeirsdóttir, opinberuðu tilnefningarnar við góðar undirtektir samstarfsfélaga og ný-tilnefndra listamanna sem sýndu viðbrögð. Hinn aðalkynnir hátíðarinnar í ár verður leikarinn bráðskemmtilegi Gunnar Hansson.

Grímuhátíðin sjálf, árleg uppskeruhátíð sviðslistageirans árið 2011, verður svo haldin í níunda sinn í Borgarleikhúsinu fimmtudaginn 16. júní og í beinni útsendingu á Stöð 2. Útsendingin hefst stundvíslega kl. 19.30, en dagskráin nýtur ávallt mikilla vinsælda hjá sjónvarpsáhorfendum, enda um einn glæsilegasta viðburð ársins í menningarlífinu að ræða. Á hátíðinni verða jafnframt heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands veitt þeim sviðslistamanni er þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista.

sjá meira á http://www.griman.is

 

 
Design a site like this with WordPress.com
Get started