Uniform Sierra sýnd í Bíó Paradís 29apríl.

•March 31, 2011 • Leave a Comment

Uniform Sierra verður ein af 9 dansstuttmyndum sýndar á alþjóðlega dansdaginn í Bíó Paradís. Allar myndirnar sem sýndar verða hafa verið sýndar á festivölum erlendis. Uniform Sierra var gerð árið 2008 en myndin hlaut fyrsta sæti sem “besta mynd” á Actfestival´09 í Bilbao.  Myndin hlaut einnig áhorfendaverðlaun  Stuttmyndadögum í Reykjavík 2008.

Síðan þá  hefur Uniform Sierra verið sýnd á festivölum á Íslandi, Ástralíu, Noregi, Svíþjóð, Spáni & Finnlandi. Uniform Sierra var valin partur af alþjóðlega sýningarhluta Reeldance Tvíæringsins og var hún sýnd í 11 stærstu borgum Ástralíu sumarið 2010.
Uniform Sierra var sýnd á opnunarkvöldi Reeldance-tvíæringsins 14 maí. Þar með byrjaði Ástralíutúr myndarinnar en Uniform Sierra var sýnd í 13 stæstu borgum Ástralíu sumarið 2010 en hátíðin endaði  í Nýja Sjálandi. Opnun kvikmyndahátíðarinnar var haldin í Sydney en myndin verður m.a. sýnd í Brisbane, Melborne,Perth, Alice Springs, Darwin,Cairns. Adelaide…

Uniform Sierra var partur af alþjóðlegum hluta hátíðarinnar sem bar nafnið “We are not from here are you?” en þar voru m.a. stuttmyndir frá Suður Afríku, Mexíko, Kína, Argentínu og Bretlandi. Meðal listamanna sem eiga mynd í alþjóðlega hlutanum má helst nefna Cai Fei, Ballet Russes,Back to Back og Tim Shore.

Dagskrá Bíó Paradísar má finna hér:

Bristol Ninja Cava crew eftir 3 daga

•March 30, 2011 • Leave a Comment
Annar gjörningur Bristol Ninja Cava Crew verður frumfluttur í útgerðinni þann 2 apríl.

Verkið sem ber titilinn Helvítis Ostapinnar er partur af röð gjörninga á Sequences sjónlistarhátíðinni en alls verða 8 verk/gjörningar fluttir milli 14-18 nú laugardaginn 2 apríl á Grandagarði 16 (Útgerðinni, Bakkaskemmu).Sequences hátíðin er nú haldin í 5 sinn en megináhersla hátíðarinnar nú í ár er á gjörninga og samruna ólíkra listforma.

Fyrsti gjörningur BNCC var fluttur á hátíðinni Villa Reykjavík síðastliðið sumar og var gjörningurinn partur af viðburðinum “Domains of Joyful Degradation”. BNCC vinnur með samankrull dans og myndlistar – silkiborðar, húðflúr, kol og techno hafa  komið við sögu í verkum þeirra. Í nýja gjörningnum verður sælgæti og riddaramenska í aðalhlutverkum.

Gjörningurinn verður fluttur í Útgerðinni, grandagarði 16 og aðgangur er ókeypis. Húsið opnar kl 14 en skipulögð dagskrá hefst stundvíslega kl 14:30.

Frábærir dómar, þrjár og hálf stjarna af 4! á pressan.is

•March 11, 2011 • Leave a Comment

úrdráttur úr dómi Bryndísar Schram af http://www.pressan.is 10. mar. 2011 – 18:55

“White for Decay eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur var annað verkið á efnisskránni. Svona eftir á finnst mér, að það hafi heillað mest. Það er byggt á fréttagreinum úr Öldinni okkar á árunum 1939 – 51, fjallar um seinni heimsstyrjöldina og þær skelfingar, sem fylgdu í kjölfarið. Sigríði Soffíu er greinilega ýmislegt til lista lagt, því að hún fæst líka við kvikmyndagerð og hefur stundað nám í sirkusdansi. Myndlist er henni ofarlega í huga. Allt þetta endurspeglast í verkinu, sem tekur hálfa klukkustund og er hrundið áfram af seiðandi, en dramatísku tónverki Jóhannesar Friðgeirs Jóhannssonar. Flott samspil milli  tónskálds og dansahöfundar.

Sigríður Soffía er sjálf glæsileg í aðalhlutverkinu á móti þremur herramönnum, þeim Ásgeiri Helga Magnússyni, Cameron Corbett og Hannesi Þór Egilssyni. Steppdansinn í upphafi er frábært atriði, sem eitt og sér er gott teater. Cameron Corbett er greinilega ekki allur þar sem hann er séður og virðist vera leiðandi í hópnum. Hannes og Ásgeir Helgi láta ekki sitt etir liggja, og öll fjögur sýna þau ótrúlega tækni og flott samspil í seinni hlutanum, sem flæðir eins og stríð elfur um sviðið og fjarar síðan smám saman út. Áhrifamikið verk, sem hefði kannski orðið ennþá áhrifameira með því að stytta það ögn.”

Sjáið dóminn í heild: http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/bryndis-schram-skrifar-um-verk-islenska-dansflokksins-sinnum-thrir-allt-a-rettri-leid

Teach us to outgrow our madness

•March 10, 2011 • Leave a Comment

Here is a new extract from Teach us to outgrow our madness filmed in Bruges , febuary 2011.

“White for decay hápunktur dansveislunnar”

•March 9, 2011 • Leave a Comment

Fyrstu dómar komnir í hús fyrir x3, og fær sýningin í heild þrjár stjörnur í morgunblaðinu.

Í dómnum segir m.a. …”White for Decay er verk Sigríður Soffíu Níelsdóttur sem hún vann í samvinnu við dansarana; Ásgeir Helga, Cameron Corbett og Hannes Þór. Í verkinu er unnið með ólíkar aðstæður, sambönd fólks, örvæntingu og hvernig maneskjan getur breyst efitr að hafa gengið í gegnum erfiðar aðstæður. Notast er við ólík hreyfiform, m.a. sirkuslist,nútímadans og stepp. Umgjörð verksins ; hljóðheimur,sviðsmynd, búningar og lýsing er mjög vel útfærð. Verkið er því mjög sjónrænt og býr yfir sterkri heild. Sigríður Soffía starfar nú í fyrsta sinn með íslenska dansflokknum og kemur hún inn með ferska strauma, sem er frábært að sjá flokkinn vinna með. White for decay er án efa hápunktur dansveislunnar Sinnum þrír.”

                                                                             (úr dómi Margrétar Áskelsdóttur, Morgunblaðið  þirðjudaginn 8.Mars 2011)

Frumsýning á White for Decay 04.03.11

•March 4, 2011 • Leave a Comment

Þá er loksins komið að frumsýningu á White for decay. Án efa óvenjulegt og eftirminnilegt æfingatímabil. Verkið þurfti að taka nokkra hringi kringum völlinn fyrir lendingu og er nú tilbúið til sýningar.

Í verkinu dansa nú Ásgeir Helgi, Cameron Corbett, Hannes Þór og Sigríður Soffía.

Tónlist er eftir Jóhann Friðgeir Jóhannsson

Búningar: Ellen Loftsdóttir

Video: Einar Brynjólfsson og Sigríður Soffía

Lýsing: Kjartan Þórisson

Verkið er partur af kvöldinu x3 en verkið Heilabrot eftir Steinunn og Brian verður sýnt ásamt nýju verki Jo Stromgren: Grosstadsafari. Ólík verk og dansgleðin í hávegum höfð.

Tilnefning til Menningarverðlauna DV

•February 26, 2011 • Leave a Comment

Dansinn tilnefndur til Menningarverðlauna DV

föstudagur, 25. febrúar 2011

Í fyrsta sinn í 31. árs sögu Menningarverðlauna DV verða nú veitt verðlaun í flokknum danslist. Aðrir flokkar eru bókmenntir, byggingarlist, fræði, hönnun, kvikmyndir, leiklist, myndlist og tónlist. Tilnefndir í flokki danslistar eru: Keðja – Reykjavík, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Ólöf Ingólfsdóttir, Reykjavík Dance Festival og Sigríður Soffía Níelsdóttir.

Keðja Reykjavik – alþjóðlegur dansviðburður
– fyrir frábært framtak
Í október 2010 skapaðist ómetanlegt tækifæri fyrir íslenska danslistamenn þegar þeim gafst kostur að mæta, kynnast og tengjast 250 alþjóðlegum listamönnum og menningarstjórnendum frá 22 löndum. Í þeim hópi voru mikilvægir kaupendur sviðsverka. Hátíðin bauð upp á 16 listviðburði af öllum stærðum og gerðum, með megin áherslu á dans og samruna hans við aðrar listgreinar, fjölda fyrirlestra, málstofa og umræðna sem leiddar voru af alþjóðlegu listafólki og menningarstjórnendum auk þess sem boðið var upp á ógleymanlega óvissuferð í íslenska náttúru. Keðja Reykjavik var gríðarlega mikilvægt stefnumót íslenskra sviðslista við umheiminn og skapaði sambönd og tækifæri til samvinnu fyrir þáttakendur sem vonir eru bundnar við til framtíðar. Keðja var samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Reykjavik Dance Festival, Sjálfstæðu leikhúsanna, Listaháskóla Íslands og Borgarleikhússins.

Sigríður Soffía Níelsdóttir
– fyrir fjölbreyttan árangur á árinu 2010.
Árið 2010 var viðburðaríkt hjá þessum unga listamanni sem kom fram með hvelli á árinu. Með viljakraftinn að vopni, hugrekki og ástríðu hefur Sigríður stigið óhindrað yfir hverskyns mörk. Undir merkjum Bristol Ninja Cava Crew vann hún að dansinnsetningum/-gjörningum, hún frumsýndi stuttmyndina Children of Eve á stuttmyndahátíð í Bilbao og sýndi dansstuttmyndina Uniform Sierra á öðrum tug hátíða í Evrópu og Asíu. Sigríður samdi dans-sirkúsverkið Colorblind fyrir Silesian Dance Theatre í Póllandi, 900 02 ásamt Leifi Þorvaldssyni, og Þá skal ég muna þér kynnhestinn með Dansfélaginu Krumma fyrir Reykjavík Dance Festival 2010. Sigríður dansaði í uppsetningu Íslenska dansflokksins á Transaquania – into thin air og ferðaðist erlendis með verki Ernu Ómarsdóttur Teach us to outgrow our madness og eigin verki Fresh Meet.

Ólöf Ingólfsdóttir
– fyrir ómetanlegt starf í þágu íslensks samtímadans
Ólöf Ingólfsdóttir danshöfundur er brautryðjandi meðal sjálfstætt starfandi danslistamanna og hefur verið driffjöður í skapa betri skilyrði í þágu listgreinarinnar á Íslandi. Hún hefur átt frumkvæði að, leitt eða stutt helstu framfaraspor til handa sjálfstætt starfandi danslistamönnum á undanförnum árum. Ólöf er einn stofnanda Reykjavik Dance Festival og leiddi uppbyggingu hennar fyrstu árin auk þess sem hún tók virkan þátt í undirbúningi að stofnun dansdeildar Listaháskóla Íslands. Hún átti frumkvæði að umræðu um Danshús á Íslandi um síðust aldamótin sem á árinu 2010 leiddi til opnunnar Dansverkstæðisins í Reykjavík að Skúlagötu 28. Ólöf var einnig í forystuhóp þeim sem skrifaði á árinu fyrstu Dansstefnu Íslands 10/20, sem er alhliða stefnumótun og framtíðarsýn fyrir íslenskt danssamfélag til næst 10 ára.

Margrét Sara Guðjónsdóttir
– fyrir Soft Target
Dansverkið Soft Target var frumsýnt á Reykjavík Dance Festival haustið 2010 áður en það fór á sýningaferðalag um Evrópu. Verkið er það fjórða í röð verka danlistamannsins Margrétar Söru Guðjónsdóttur sem sýnd hafa verið frá árinu 2006 og framleid eru af Panic Production. Í anda ofur naumhyggju er fagurfræði verksins einstaklega skýr, í senn nákvæm í endurtekningum sínum og dáleiðandi. Verkið er án efa eitt áhrifamesta sólódansverk sem litið hefur dagsins ljós á Íslandi á síðastliðnum árum.

Reykjavík Dance Festival
– fyrir árangursríkt starf í þágu íslenskra áhorfenda
Danshátíðin, stofnuð árið 2002, hefur vaxið og dafnað með hverju árinu og er í dag mikilvægasti vettvangurinn fyrir nýsköpun í íslenskum samtímadansi. Með tilkomu hennar hefur fjöldi danssýninga á hverju ári aukist jafnt og þétt. Þannig hafa möguleikar almennings til að njóta listdans aukist til muna auk þess sem hátíðin hefur náð til nýrra áhorfendahópa og byggt upp tengslin við þá. Árið 2010 voru mörkuð tímamót þegar áhorfendamet var slegið langt umfram það sem áður hafði þekkst. Hátíðin hefur frá upphafi haft úr litlum fjármunum að spila og fengið lága styrki úr opinberum sjóðum. Er sá mikli árangur sem náðst hefur, fenginn fyrir óeigingjarnt sjálfboðastarf danslistamanna en samtakamáttur þeirra hefur vakið athygli, jafnt hér heims sem og á alþjóðlegum vettvangi.

 

sjá meira á http://www.dance.is

Teach us to outgrow our madness in Bruges 22.02.11

•February 19, 2011 • Leave a Comment

 

On Tuesday 22 February 2011 the danceperformance Teach Us to Outgrow Our Madness by and with Erna Omarsdottir will be presented in Bruges, MaZ Magdalenazaal, 20h00.

Five Nordic women. A terrifying secret. Five seemingly ageless creatures. Possessed by a spirit that turns this at times so well-mannered quintet into a Dionysian force. Teach Us to Outgrow Our Madness sets out to explore the intense relationships that exist between women living closely together – be it sisters, nuns, witches, best friends, members of a sect, or polygamist wives. The rivalry, the secrecy, the gossip, the cruelty but also the kindness, the bonds, and the unconditional love. This piece combines dance, live music and storytelling into a horrifying yet liberating experience.

for more information see http://www.fransbrood.com

From rehersals – White for decay

•February 18, 2011 • Leave a Comment

www.sequences.is

•February 18, 2011 • Leave a Comment

Sequences-festival getting closer & the premiere of BNCC new piece

Reed more about Bristol Ninja Cava Crew at

http://sequences.is/

 
Design a site like this with WordPress.com
Get started